Forsíða

Myndir

Verðlisti

Staðsetning

Um Keldunes

Bókaðu hér

Tenglar

Keldunes bæklingur

Íslands kort

 

Vefur: http://www.keldunes.is  ©Einar Ó.Magnússon

Í Keldunesi er gistiaðstaða í sex tveggja manna herbergjum með handlaug í gistihúsinu. Auk þess eru tvö smáhýsi sem eru búin helstu þægindum og sér snyrtingum með sturtum.
  Í gistihúsinu er góð setustofa, sem má einnig nota sem veislusal, eldunaraðstaða, þvottahús, baðaðstaða og heitur pottur.
Á stórum svölum er grillaðstaða og gott útsýni yfir Skjálftavatn, þar sem er fjölskrúðugt fuglalíf.
  Ef óskað er býðst gestum veitingaþjónusta. Einnig tekur matselja að sér að útbúa skrínukost fyrir göngufólk, veiðimenn og aðra gesti.
Veiðimenn Litlár eru hvergi betur staðsettir en í Keldunesi við bakka Litlár.

Stutt er í margar náttúruperlur eins og Ásbyrgi, Dettifoss, Litlá, Jökulsárgljúfur, Hólmatungur, Rauðhóla og Vesturdal.

    Gestgjafar eru Bára Siguróladóttir og Sturla Sigtryggsson

Keldunes II • 671 • Kópasker • Sími: 465-2275 / 861-2275

Póstur:  info@keldunes.is

Keldunes er tilvalinn áningarstaður fyrir gesti sem ætla að skoða þingeyjarsýslur Allar helstu náttúruperlur á Norð-Austurlandi eru handan við hornið, má þar nefna Ásbyrgi Dettifoss Þjóðgarðinn í jökulsárgljúfrum Mývatn, auk fjölda annarra staða sem vert er að skoða.

Fuglalíf á Skjálftavatni er fjölskrúðugt og áhugavert fyrir fuglaskoðara.

Frábær veiðiá skoðaðu Litluá

 

eXTReMe Tracker