|

Um Keldunes
"Gamli"
Keldunesbærinn stendur spölkorn sunnan við
bæinn Keldunes sem er
eitt sex býla í bæjarhverfi í Kelduhverfi.
Gistihúsið Keldunes er steinsteypt 180 fm íbúðarhús
á tveim hæðum, byggt árið 1920 og stækkað árið 1950.
Aðstaða fyrir gesti
Nú hefur húsið verið endurbyggt af miklum
myndarskap. Gistiaðstaða er í sex tveggja manna
herbergjum. Í öllum herbergjunum er handlaug. Einnig
eru tvö smáhýsi með svefnplássi fyrir tvo
hvort,eldunaraðstöðu góðri snyrtingu og öðrum
þægindum. Að öðru leyti byggist aðstaðan á rúmgóðri
setustofu, sem má einnig nota sem veislusal,
fullkominni eldunaraðstöðu sem býður upp á öll
nútíma þægindi,
þvottahúsi og baðaðstöðu. Gengið er út á stórar
svalir sem snúa í suður, af annarri hæð hússins. Þar
er grillaðstaða. Af svölunum er gott útsýni yfir
Skjálftavatn, þar sem er fjölskrúðugt fuglalíf. Fast
við húsið stendur lágreistur súrheysturn, sem nú
hefur fengið það hlutverk að hýsa rúmgóðan heitan
pott og sturtu.
Fugla og
náttúruskoðun
Skjálftavatn er rétt hjá keldunesbænum, þar
er að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem er einstakt
eins og vatnið sjálft en það varð til í jarðumbrotum
árið 1976. Jökulsá rennur rétt við Skjálftavatn en á
fljótinu er oft gott að nálgast Sel. Tjörnesið er
tilvalið til að virða fyrir sér bjargfugl.
Skot og stangveiði
Möguleiki er á að komast bæði í skot og stangveiði.
Ástæða er til að benda veiðimönnum, sem hyggjast
veiða í Litlá, á að helstu veiðistaðir árinnar eru
steinsnar frá ferðaþjónustu-staðnum Keldunesi og því
tilvalið að panta sér gistingu þar.
Veitingar
Ef óskað er, býðst gestum veitingaþjónusta. Einnig
tekur matselja að sér að útbúa nesti fyrir göngufólk
og veiðimenn.
Staðsetning
Keldunes stendur miðsvæðis í Kelduhverfu
við veg nr. 85 milli Húsavíkur og Kópaskers.
Gistiaðstaðan í Keldunesi er tilvalinn dvalarstaður
til skoðunarferða. Þaðan eru um 12 km í austur í
þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum með Ásbyrgi,
Hljóðaklettum, Hólmatungum og Dettifoss. Í Ásbyrgi
er verslun og 3 km austar er sundlaug við skólann í
Lundi.
Bæjarhverfið í Keldunesi stendur í grennd við
Keldunesbrunna, sem eru fallegar uppsprettur undan
hraunbrún. Í mikilli jarðskjálftahrinu á árunum 1975
til 1976 varð mikið landsig skammt norðaustur af
Keldunesi og myndaðist þar þá stórt stöðuvatn sem
nefnt hefur verið Skjálftavatn. Þarna voru
áður lítt grónir sandar. Skjálftavatn hefur
afrennsli um Seyrur í Brunnakvísl og þaðan í Litlá.
Sagan
Í Keldunesi var áður þingstaður sveitarinnar. Þar
fæddist Skúli Magnússon (1711-1794) landfógeti,
fyrsti Íslendingur til að hljóta það embætti. Skúli
var frumkvöðull að stofnun iðnaðarverksmiðja
(innréttinga) í Reykjavík og barðist einarðlega gegn
einokunarkaupmönnum og dönskum stjórnvöldum.
Rétt eftir aldamótin 1700 henti það bóndann í
Keldunesi, Árna Bjarnason, að eignast barn með
systur eiginkonu sinnar, en á þeim tíma lá
líflátshegning við slíku. Þetta barst til eyrna
sýslumanns Þingeyinga Halldórs Einarssonar.
Sýslumaður hét Árna fullu frelsi ef hann játaði á
sig gjörninginn. Samt sem áður fór sýslumaður með
Árna til Alþingis árið 1705, þar sem hann var dæmdur
til lífláts. Þótti Árni bregðast við dómnum af
mikilli karlmennsku og hafnaði náðunarumleitan við
konung. Barnsmóður hans var drekkt heima í héraði
nokkru síðar.
|